Mér var ýtt á stað niður brekku þegar ég var 8 ára. Það hafði verið rigning og grasið rennblautt.
Rann niður með enga stjórn á hjólinu og lenti á horni á rafmagnskassa. Höfuðkúpubrotnaði, tveir jaxlar færðust um 90°(þurfti að taka þá úr mér) og það sprungu í mér varirnar.
Það þurfti að sauma 32 spor í hausinn á mér, og allur í hefti plástrum í andlitinu. Hefði ég ekki verið með hjálm sæti ég ekki hérna við lyklana. =D
Svo lenti ég í árekstri við vin minn, fékk bremsuna á hans hjóli í gegnum kinnina á mér, skaust framfyrir mig, og reif upp á mér sköflunginn og sprengdi í mér vörina, typical.
Nú, það þurfti að sauma 11 spor í sköflunginn á mér og fékk þvílíku hefti plástrana í andlitið í annað sinn.
Svo er ég allur í örum eftir minniháttar slys. ;)
En já, þetta er svona það helsta.