Bara til að vera leiðinlegur við brettamenn. Ekki taka þetta of nærri þér, margir góðir vinir mínir eru bretta menn og þeir eru ekkert verri manneskur fyrir vikið.
En hinsvegar finnst mér að skíði séu rosalega vanmetin hér á landi á móti brettum, það hugsa allir um að byrja á brettum hér á landi, líklega vegna þess að þeir halda að það sé bara hægt að stökkva á bretti en ekki skíðum. En á næsta ári stefni ég á að
breyta þessu hugarfari með því að kaupa mér freestyle skíði og fara að leika mér milli þess sem ég ber stangir.
Þanngi að ég segi áfram með skíðin og niður með brettin, það eru hvort sem er svo margir á bretti!