Ég veit ekki hvort það myndi leysa þennan mikla vanda!!!
Við erum ekki þeir einu í heiminum sem eru að berjast við lítil börn og dóna sem gera ekkert annað en að hjóla á pöllunum og drulla svo yfir parkið ef það er ekki í lagi!?!
Þetta eru bara skíthælar í orðsins fyllstu merkingu og ekkert annað!
Það er óskráð regla að þeir sem eru að nota pallana eiga að laga þá eftir sig, og sumir sem eru að hjóla hérna mættu alveg vera liðlegri í að hjálpa til við að moka þegar á þarf að halda!
Ég get nefnt alla hérna sem hafa hjálpað til við drullumokstur síðustu ár og þeir eru nú ekki margir, en góðir engu að síður.
Ég vil nota tækifærið og þakka þeim fyrir,
siggi hulk, árni afi, sindri gullpungur, ingó olsen, arana, geiri, bjarki, gummi danski, hákon, grettir, antonio, andri, robbi, bjöggi, teknóhaukur, ingvar, óskar, hrafn, torfi (þegar hann var ekki að vinna!?!) danni pimp, gústiJr, steinilati og pétur haukur, plús fullt af litlum gaurum sem voru duglegir að týna steina fyrir sessionið!
hey guy´s þetta er ekki eftir neinni sérstakri röð, en það má vera að ég sé að gleyma e-h höfðingja og má hann gjarnan láta mig vita.
Kv Lemmy