Við getum í raun ekkert sagt þér hvort þú ættir að fá þér DJ eða BMX hjól, við getum kannski hjálpað þér að velja á milli tveggja DJ hjóla eða tveggja BMX hjóla.
Aftur á móti gætum við líka reynt að segja þér afhverju sum okkar viljum DJ frekar en BMX, og öfugt.
Svona er algjörlega persónu bundið, en með því að segja þér hvernig það er að vera á DJ eða BMX hjóli og hvað það er sem okkur líkar eða líkar ekki við þá gætum við gefið þér hugmynd um hvort þú ættir að byrja á, DJ eða BMX, en einungis hugmynd, þú einn getur svarað því. Og að eins með þinni eigin reynslu.
Ég persónulega myndi fá mér DJ hjól frekar en BMX, ég hef samt aldrei átt DJ hjól, heldur er þetta það næsta sem mig langar að prófa af því að mig langar að prufa 4x og þannig á aðeins léttara hjóli en full sus, síðan er ég ekkert alltof mikið fyrir BMX, ég næ ekki að verða svona smooth á pöllum og þannig, en ég gæti samt sem áður alveg hugsað mér að eignast BMX hjóla einhver tíman aftur. En næst er það DJ, fíla þetta millistig á milli hardtail og BMX….