Ég held að við “hjóla” gaurarnir séum ekki nógu fjölmennir til að taka heilt áhugamál, en að sjálfsögðu væri það mjög gott mál ef því áhugamáli væri bætt við. Það yrði sko alls ekki eitt af þessum “dauðu” áhugamálum hérna á huga, það væri frekar að það myndi drepa jaðarsport áhguamálið, en um leið er það að mínu mati ekki sangjarnt að gefa okkur ekki okkar eigið áhugamál.
Þannig að við ættum að hvetja stórendur Huga til að gefa okkur okkar eigið áhugamál, en ég held að það verði ekkert úr því fyrr en eftir þessar “tiltektir” sem eiga sér stað hérna um þessar mundir.