Ég get ekki treyst neinum ég veit ekki hverjir halda á vinningunum
Ég meina þig sáuð hvernig fór fyrir fjármálbyggingum
Óöryggi það er orðið sem einkennir þessa móðursýki
Enginn er öruggur ekki einu sinni þessi voldugu ríki
Hverjum á ég að fylgja og hverja á ég að hata
Það eru svo margir möguleikar það er ekki eins og þetta sé einstefnugata
Allir segjast berjast fyir það góða en ég held að enginn geri það
Svo segja þeir að það sé málfrelsi en ég þori varla að anda
Sumir vilja taka þátt en aðrir fylgjast með
Svo ef þú stendur upp gegn stórabróður þá gæti það orðið þitt dánarbeð
Þú veist ekki hver er né hvað er rétt
Og hver sagði svo að lifið væri leikur einn
Það þarf að fylla upp svo miklu meira
Hverja átt þú að styðja þú veist ekki hverjir skeika
Ég sé enga framtíð í þessum lygum og öllum þessum drápum
það er friður til staðar en hann er lokaður í ólæstum skápum
við lifum á nýrri óvissuöld
það verður ekki friður fyrr en haturs tilfinningin verður kvödd
<br><br>Undirskrift??????
ostur ahhhhh