með hnén á jörðinni fyrir framan þig bið ég um fyrirgefningu
eftir játningu frá hjartanu bíð eftir þinni snertingu
svo syndir verði strokaðar burt og þú endurvekir hrifningu
á týndri sál sem skolaðist burt frá þér í þungri rigningu
ég lifna við að nýju ef þú dregur mig inn úr kuldanum
og ég borga þér með þakklæti þó ég eigi ekki fyrir skuldunum
sem safnast hafa upp með röngum leiðum sem ég hef valið
falið hugsanir sem kvelja þar til ég get ekki staðið
þitt er valið, verð ég áfram kvalinn af eftirsjá og efa
það er þitt að velja, það getur reynst erfitt að fyrirgefa

(tilraun til að pósta einhverju sem er öðruvísi en textarnir sem hafa hertekið þennan kork.)