Leita út fyrir sjónheildarhringinn en ekkert blasir við augunum
Ég finn vonda lykt en sé ekki neitt “er ég á ruslahaugunum”
Reyni að þreifa fyrir mér með höndunum en ég finn ekki neitt
Það er eins og ég standi í lausu lofti engu þyndarafli beitt
Er ég einn fastur í mínum eigin huga
Öll sorgin samasafn af tilfinningum sem ég hef reynt að buga
Heyri raddir, nei þetta er mínar eigin raddir
Þetta eru bældnar tilfinningar sem ég fyrir löngu kvaddi
en hef aldrei komist yfir allan tilfinningaþrungan
Reyndi að fela óttan en tókst ekki að buga ann
Nú rifjast þetta allt upp, öll sorgin
Ég horfði á þig en allt í einu varstu horfin
Guð getur verið grimmur en afhverju við mig
Afhverju þarf þessi hugsun að koma upp í huga minn
Þetta er guði að kenna, nei það er enginn guð
ég er einn í lausu lofti og heyri bara nístandi suð
ég heyri aftur raddir og aftur mínar eigin
ég er fastur í spili en ákvað aldrei sjálfur að fara í leikinn
ég valdi ekki þetta líf afhverju þarf ég að lifa því
allt var svo auðvellt en það var eintóm tálsýn
ég stend í skýjunum þarna er hún brosandi
heyri aftur raddir ,ekki min var þetta guð sem að talaði
lít til allra átta en sé bara ský og hana í ljósadýrð velsældar
er hún kanski ánægð þarna uppi nýtur hún heilagrar verndar
var henni ætlað að vera hjá guði því hún var eitthvað meira
en hún var svo yndisleg á jörðin algjör hamingjuveira
kanski verð ég bara að halda áfram lífinu
ég mun ekki deyja því ég færist einnig með tímanum

comment
<br><br>Undirskrift??????
ostur ahhhhh