ég litaði hárið á mér gult… til að líkjast Eminem
en eftir málið með Seppa í Den þá er ég alltaf þekktur sem Feminem
og 7berg, það er ekki satt, við vinirnir frístælum ekki bara á rassgötum
þú ættir að sjá mig á irkinu… ég HAMAST á tökkunum!
og segir að ég viti ekki neitt um hip-hop? HVAÐ???
ég á áritað eintak af Rottweiler-disknum.. .geturu toppað það?
labbaði fram hjá Erpi, niðrí samkaup þúst ríal læf
en ég panikkaði svo mikið að það eina sem ég þorði var að segja hæ
og ólíkt Dóra þá geymi ég rímurnar mínar skrifaðar
ég fékk 9.5 í íslensku svo það er ekki séns að þú miskiljir þær
og blaz já takk, ég þigg alveg smá kjöt
en ég veit ekki hvar Argentína er, svo viltu ekki bara koma í samkaup
og já lagið með Bent, Bent nálgast, er sko bara kjaftæði
sá hann á tónleikum en eftir þá, hann fór og bara fjarlægðist
ég fór að elta hann en datt og varð að fokkin athlægji
en það er bara fínt, vonandi gleyma þau að ég var hözzlaður af afkvæmi