Munda pennan um miðja nótt, get ekki sofið rótt
lífið allt of ljótt, líður ekki áfram nógu fljótt
er að berjast við svefnleysi, er að verða feitt kreisí
og þó ég leyti eftir gjörbreyttri líðan virkar það hreint ekki
hef ekki efni á því að tapa meira svefni af því
það er að kæfa mig og númer 1 á óskalista er að kafna ekki
falla ekki í stálhlekki, ekki láta halda mér í fjötrum
ég og penninn rötum ekki að fullkomnum en samt við áfram kjökrum
og þó ég sé í flottum fötum í vinahóp með brosávör og bregð´ á leiki
líður mér ekki vel því endanleiki einfaldleikans feykir feiki
alltof lengi og ég og pennin verðum smeykir í miðjum hvirflinvindi aleinir
en ég með penna leyni á mér og segji fokk jú og breytist
skítsama hvað þú segir, manstu þegar ég bað um leyfi?
fékk ég leyfi? einzog mér sé ekki sama hvað þú segir
ekki einzog ég deyji, svo það er hollast að þú þegjir áður en þú meiðir þig
verstu viss á því sem þú segjir, því hér er enginn mamma sem leiðir þig
svo passaðu það sem þú segir svo það fari ekki í hring og beint í andlitið
ég kelling? okei, þá fæ ég mér bara strap-on og tek þig samt í rassgatið