ég hugsa hvað þetta gæti létt af mér miklri byrði
hugsa bara ef ég hefði kraft og virkilega þyrði
að takast á við eigin huga og stjórnleysi sem ég ræði eigi við
eins og þegar ég vakna hlusta og heyri þetta fjarlægða tið
er þetta engill kominn til að taka mig á brott
hugsa væri lífið ekki auðveldara allt svo fallegt allt svo gott
hugsa aftur hvað skil ég eftir í þessum heimi ,eftir hér
vinahóp og fjölskyldu sem virkilega ann mér
hvað er ég að hugsa ég hef það svo hrikalega gott
ég lifi í heilum draumi ef ekki lukkupott
afhverju að hugsa um það sem maður hefur gert svo rangt
það yrði allt of erfitt ,allt of mikið ,allt of langt
hugsa fram a við ég á svo mikinn tíma eftir
ég er ungur og hæfileikaríkur það er ekkert sem förinni heftir
að halda áfram í þessum yndislega heimi og fara stigann upp á við
veit að ég þarf að vera þolimóður, ég veit það verður bið
þarf bara byggja mig og styrkja andlega
þarf að tjá mig og gera það vel og vandlega
því ég er svo fjandi mikið og á svo mikið inni
vona að ég nái skriði og ástina finni
ég sem þennan texta því ég get ekki tjáð mig öðruvísi
geri það í bundnu máli og ekki annað kysi
því ég kann við í þessu fagi og hér á ég heima
ég get bætt mig endalaust , ég þarf aðeins að reyna
það var 14 maí 82 þegar ég fæddist í þessa veröld
var svo saklaus vissi ekki að hún væri svona köld
en það er hægt að lifa góðu lífi ef þu reyni það virkilega
ég átti svo góða framtíð ,svo efnilega
og á það enþá ég er ekki dauður í öllum æðum
við hvað ég er alltof ungur til að eiga í svona samræðum
því sama hvað við föllum oft finnum við hamingjuna einhvers staðar
bara renna blint í sjóinn og láta vaða