Ég lít á ástandið í dag og mín reiði hún fer rísandi/
mannréttindi fótum troðin í ”lýðræðisríkinu” Íslandi
sem er að breitast í einræði með hverjum deginum/
sjálfstætt hugsandi fólk,hlustið á það sem ég segi nú.
ég er er þreyttur á þeim lygum sem að berast af hinu háa Alþingi/
því mér var kennt er ég var ungur að ef þú lýgur þá ert þú aumingi
ráðherrar þeir þola ekki sannleikann,þola engin andmæli/
spurningum svara með meira bulli en Hr Kaldhæðni í frístæli
en Ég mæli af visku,einsog Jesú Kristur/
sýni yfirvöldum enga miskunn því í réttlætið mig þyrstir
við þurfum að gera byltingu,þurfum að mynda breiðfylkingu/
og tökum ekki á málunum með neinum hönskum úr silki nú/
því
það eina sem að gildir er fokking hart á móti hörðu/
kanski eftir 50 ár verður okkar kynslóðar minnst sem þeirra sem lýðræðið vörðu…

framhald í binnslu