Jæja gott fólk,
Ástæða þess að við fórum yfir á Radio X er sú að samningur okkar við Rás 2 var laus. Okkar var skipað að fara í sumarfrí og var allt óljóst hvort við færum aftur í loftið í haust. Radio X og Undirtonar leituðu til okkar og við slóum til svo við gætum verið í loftinu í sumar og verðum þar í vetur.
Það verða miklar breytingar á Radio X, nýjir þættir koma inn sjá hér að neðan:
(Birt með leyfi Undirtóna)
Um mánaðarmótin maí-júní munu verða tímamót í Íslensku útvarpi þegar
að Radíó X og Undirtónar munu setja í loftið á ný hina ódauðlegu sérþætti
sem gerðu garðinn frægan hér á árum áður. Útvarpsþátturinn Chronic,
Fönkþátturinn, Babylon, Brekbeat.is og Karate mæta allir ferskir til leiks
og verða í kvölddagskrá Radíó X frá og með 1. Júní.
Chronic verður að sjálfsögðu í umsjón guðföður hip hopsins á Íslandi,
Robba Chronic a.k.a. Dj Rampage en honum til aðstoðar verður hans hægri
hönd, dj Fingerprint. Þá verður Balli Fönk umsjónarmaður Fönkþáttarins sem
fyrr en Brekbeat.is verður í umsjón þeirra Alla Active og Reynis frá vefnum
breakbeat.is. Reynir þessi er útvarpinu ekki ókunnur því hann stýrði bæði
Tækni og Elektróníka á gamla X-inu 977. Babylon heldur síðan áfram að vera
í umsjón Mínus rokkarans Frosta og Karate verður sem fyrr undir stjórn hins
virta indie-haus, Andra úr hljómsveitinni Fídel.
Að þessu tilefni verða Radíó X og Undirtónar með opið hús á Gauki á
Stöng miðvikudaginn 29. maí frá kl: 20-22 þar sem fólki er boðið að
samgleðjast og fagna þessum áfanga með köldum veitingum. Að því loknu er
nátturulega tilvalið að skella sér niður á neðri hæðina þar sem
hljómsveitirnar Mínus, Ceres 4 og Desidia munu spila á Stefnumóti klukkan
22:00.