Þú heyrir rímu mína einu sinni og þú færð hana á heilann,
heyrir hana einu sinni enn og eina sem kemst að er Rottweila.
Á hverju götuhorni ferðu að sjá ásjónu mína,
innan skamms ertu farinn að efast um geðheilsu þína.
Þú heyrir rödd mína í hausnum á þér, heyrir að ég er orðinn æstur,
fer að ásækja þig í draumum og aðdáun þín breytist í ofsahræðslu.
Þú ert orðinn strengjabrúða og veist að ég er yfir þér,
þú getur flúið en þú getur aldrei falið þig fyrir mér.
Þú ert á leið til sturlunnar þannig tek ég þig á taugunum,
getur aldrei gómað mig því þú sérð mig ekki fyrr en þú lokar augunum.
Þú fjarlægist raunveruleikann með hverju orði af mínum munni,
ef Freddy Kruger væri til mynd'ann dreyma martraðir um mig.
Nú ertu orðinn holdgervingur illsku og gegnum þig við myrðum,
erum ekki í víðu heldur kyrtlum,
er ekki við yrkjum heldur kyrjum.
Rýmur af mínum syndum,
gefinn út í fimmtán myndum,
veruleikafirrtur, rís úr kistu fyrstur,
antikristur.
Nú ert sturlunin farin að dreifast sem plága og allir mína rímu syngja
og ég leiði her uppvakninga og geðsjúklinga.
Með satanískum rímum drepið ófáa en enn ég tunguna tálga.
Nostradamus smáði um komu mína Helter Skelter Bent nálgast.
Viðlag:
Ég skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafnmörgum.
Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á öðrum.
Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum.
Kem svo sjálfur á sjöunda degi að ráða ykkur af dögunum.
Ég er hann, ég er Jahve, Jah, ég er fokkin' Óðinn.
Fokk flæðismetafor mínar rímur eru syndaflóðið.
Eftir battl, heyrir ég aldrei klapp, en ég elska grátina,
til helvítis með jarðneskar eigur, við skulum battl'uppá sál þína.
Þú veist ekki í hverju þú lendir er koman er fyrir hendi,
hlustaðu á rímurnar afturábak og þú heyrir djöfullegar athugasemdir.
Og jafnvel Auxpan öskrar á eftir mér að ég sé viðundur,
og þeir sem byrja að fíla mig eru kallaðir djöfladýrkendur.
Listamaðurinn fyrrum þekktur sem bent til að hrista upp í hlutunumm
og nýja nafnið mitt er fimmhyrnd stjarna með hring utanum.
Andstæðingarnir grípa ekki hljóðnemann þeir grípa kross og beina honum að mér.
Og enginn stendur upp án biblíu og með hvítlauk um hálsinn á sér.
En mig langar að verða frægur rappari fá samning og meika það,
en sviðsframkoma mín er þannig að Marilyn Manson mynd'ekki einusinni mæta á tónleika.
Hatur mitt er hreint, ríf úr mér svart hjartað til að sýna hversu reiður ég er.
Mun aldrei róast fyrr en það er endurvaktar mannfórnir til heiðurs mér.
Viðlag