Haha farðu í Nexus og spurðu. Nei samt skiljanleg villa. En Nexus er súrasta búð í heimi. Einu sinni fóru vinir mínir þar inn og ég stóð í dyrunum og konan snappaði og öskraði “VILTU HÆTTA AÐ LÁTA BRAKA Í HURÐINNI”. Hún var ljót svo að ég brosti og brakaði aðeins meira og labbaði svo út. Ógeðslega súrt dæmi.
ALDREI spreyja á neitt sem bitnar á einhverjum einum.. t.d. spreyja á hús eða tagga bíla, það er hræðilega illa gert, en tagga rafmagnskassa, eða eitthvað sem ríkið á er “allt í lagi” meðal graffara
Af hverju spreyja þá eiginlega allir graffarar á íbúðarhús? Ég horfi frekar mikið á krass og þekki þessi helstu nöfn alveg ágætlega og það virðist enginn setja fyrir sig að krassa á húsin hjá fólki.
Svo er náttúrulega ekkert skárra þegar menn eru að sóða út “eigur ríkisins” eins og þið kjósið að kalla allt sem er ekki í einkaeigu. T.d. voru einhverjir fábjánar búnir að gjörsamlega rústa gömlu sundhöllinni um daginn sem er eitt af fáum virkilega fallegum húsum í Reykjavík. Flest fólk verðu mjög fúlt þegar það sér svona skemmdarverk. En það er líklega tilgangurinn hjá þessum andfélagslegu lúserum. Fólk vill ekki hafa þetta krass í kringum sig og þessvegna gera þeir þetta. Spennandi adrenalín kikk þangað til þeir eru loks gripnir og fara að skæla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..