það er ekki mér að kenna að þú sért svona beiskur
það er ekki mér að kenna að þú höndlar ekki neyslu
ekki mér að kenn'að þegar boðið er til veislu
að óbeisluð hegðun þín vald'ósjaldan hneykslun
veistu, að í lífin'eru óskrifaðar reglur
þú drekkur ekki meir eftir að þú ert orðinn léttur
þú reykir ekki jónur einsog sumir reykja rettur
og hámar ekki í þig þegar þú ert orðinn mettur
í kvöld verður spurt, jó, hvernig maður ertu?
ertu einhver aumingi eða ertu viljasterkur?
ef að þú ert einsog Poetrix ertu illa settur
því hann er bara núll og nix sem breytist er hann drekkur
og verður eitthvað sick einsog, smánarblettur
ekki lifa lífin'einsog það sé endasprettur
Vel góður texti verð ég að segja.