Jú jú, það vita held ég bara allir skoðun þína á 50 Cent, það sem ég var bara að segja er að þú ert ALLTAF að skíta yfir 50 þegar þú heyrir nafnið hans nefnt, það er bara farið að fara í taugarnar á mér, t.d. var þessi gaur ekkert að spurja þig hvort það væri tímasóun að hlusta á 50, heldur lag úr bíómynd. Finnst bara tilgangslaust að þú sért að skíta yfir tónlistarmenn sem aðrir fíla, þó að þú fílir hann ekki er það ekki tímasóun að hlusta á hann. Þú verður að fara að bera smá virðingu fyrir tónlistarsmekk annara, það eru ekki allir eins og þú.