Já, þú ert flippaður. Kemur með þennan líka geðveika “djók” og virðist virkilega finnast þú fyndinn, sniðugur, eða eitthvað í þá áttina.
Týpískt svar frá þér við þessu væri: “Ég veit að þetta er ekkert fyndið en ég geri þetta bara samt”, “haha” eða eitthvað álíka witty. Og áður en þú pælir í því, þá nei, það er ekki sniðugt og gerir þig ekki kúl.
Og áður en þú segir að þú viljir ekki vera kúl, þá…nei, þú vilt vera kúl. Þú hefur hinsvegar fattað að þú munt aldrei geta það, svo þú reynir hvað þú getur að vera eins “öðruvísi” og hægt er.
Og áður en þú dæmir mig fyrir að kalla þig öðruvísi, þá get ég sagt þér að aðeins tvö gerð af fíflum eru til í heiminum. Eitt; fólk sem fylgir tískunni útí öfgar, bara því þetta er í tísku. Tvö; fólk sem forðast tískuna einsog heitan eldinn, bara því það vill svo mikið vera “öðruvísi”. Og já, þú fellur í seinni hópinn.
Vinsamlegast, svona þín vegna, þroskastu og/eða þegiðu. Takk fyrir og góðar stundir.