Það verður á disknum Fjölskyldan : Nýja Textamentið sem kemur út í þessari viku.
Erum ekki alveg búnir að festa daginn á það (fer eftir hvað fjölföldunin tekur marga daga) en það verður í það minnsta fyrir 25 feb.
Það ætti að vera óþarfi að nefna það en ég geri það samt. Það er með öllu óleyfilegt að stela þessum lögum af síðunni eða disknum þegar að því kemur og dreifa á netinu.
Það er viljandi gert að hafa það stillt að ekki sé hægt að sækja lagið á síðunni, svo vinsamlegast virðið þá vinnu sem að Helgi og Nóri í þessu tilfelli, (og svo þá vinnu sem restin af okkur hefu lagt í diskinn þegar hann kemur út) og kaupið diskinn og styrkið áframhaldandi lagavinnslu.
Við þurfum að borga reikninga fyrir stúdíóaðstöðu og fjölföldun og annað slíkt svo hjálpið okkur í að halda því gangandi.
Takk fyrir.