ég hef aldrei verið viss um þetta, en hvernig lést Eazy E? ég heyrði einvherstaðar að þetta hefði verið bílslys, en veit ekki hvort ég á að trúa því, vinsamlegast segið mér hvernig þessi maður lést.
Ef þú hefðir hlustað á Gettu Betur á föstudaginn vissirðu þetta!
Ein spurningin var “Hvernig dó Eazy-E og hvað hét platan hans?”
Síðan var spurt “jafnerfiðrar” spurningar, það var spilað úr lagi eftir C.L. Smooth og Pete Rock og spurt hvað það héti og hvað skammstöfunin á laginu þýddi.
Finnst einhverjum hérna þetta jafnerfiðar spurningar?
Jebb, en málið er að fæstir í Gettu Betur eru vel að sér í rappi. Held að mikið fleiri viti þetta um Eazy.
Annars eru allar spurningar erfiðar sem maður veit ekki sjálfur og allar léttar sem maður veit, en þungar spurningar almennt eru þær sem færri vita en ella.
Eazy dó af sökum AIDS árið '95. Gæti vel verið að þú sért kannski að rugla honum við D.O.C. í sambandi við bílslysið. D.O.C. lenti í svakalegu bílslysi en lifði þó af en þar sem hann skarst á háls þegar hann þaut út um rúðuna eyðilögðust næstum raddböndin hans, synd flottur MC þar á ferð.
Kannski hefurðu fengið það út eftir lagið What's the Difference með Dre, þar nefnir hann báða rappara(E og D.O.C.) og örlög þeirra.
But you was a real nigga, I could sense it in you I still remember the window of the car that you went through That's fucked up, but I'll never forget the shit we been through And I'ma do whatever it takes to convince you Cuz you my nigga Doc, and Eazy I'm still wit you Fuck the beef, nigga I miss you, and that's just bein real wit you
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..