Eitt sinn ég var tjillandi og blastandi á fullu/
Er allt í einu ég, hugsa uppúr þurru/
“Kann ég eitthvað, er ég góður, kúl eða hip/
er ég wannabe sem bullar og kann ekki shit/
reyni ég að fylgja straumnum, reyni ég að vera inn/
er ég jafnvel einstakur, með betri huga en þinn/
er ég með góðar rímur, kem ég með gúddí shit/
er ég wacky MC sem reynir bara að fitta inn”/
Pæli í þessu en kemst ekki að neinni niðurstöðu/
hugsa og kemst að því að ég geng ekki í gangsta fötum/
ég reyni ekki að baktala og hugsa: “hötum, hötum”/
ég reyni ekki að vera kúl og ryðjast í biðröðum/
ég er víst með meira hár á hausi en á höndum/
nei, ég er ekki hiphop, ég öskra lungum þöndum/



Ahm, er þetta ekki bara nokk satt?