Held það sé ekkert í gangi í USA í dag. Gæti farið að hitna í kolunum bráðum þar sem NaS var búinn að lofa diss lagi á 50, aldrei að vita hvað mun koma þar.
Annars tók 50 “dissið” frá Head dáldið nærri sér hver veit nema hann droppi lagi á fyrrverandi þungarokkarann.
Enn í grófum dráttum þá var Game og 50 beefið svona: 50 kickaði Game úr G-Unit opinberlega í útvarpsþætti á Hot 97 stöðinni. Á sama tíma og á þættinum stóð fóru Black Wall street, gengið hans Game's, niður á Hot 97 og heimtuðu að fá að sjá 50, átök brutust út og einn Wall street drengjana var skotin í löppina.
Game fór strax í blöðin og opnaði munninn og sagði ýmsa slæma hluti um 50 og öfugt.
Þeir byrjuðu að dissa hvorn annan opinberlega á tónleikum og leit allt út eins og þetta myndi fara í háaloft enn þá kom Dre inná milli og setti þá niður við samningaborðið.
Ákváðu þeir að semja frið/vopnahlé og svona sign-of-good-will þá gáfu þeir báðir 500,000$ í sitthvora góðgerðarstofnanna.
Þetta var kannski í eins grófum dráttum og ég ætlaði upprunalega að gera enn svona var þetta nokkurn veginn og hefur ekkert meira gerst þeirra á milli.
Getur lesið meira um þetta beeef og önnur á
http://frettir.hiphop.is <-Góð frétta síða fyrir Hip-Hop unnendur.