Dansa… Dansa…

Dönsum öll eins og brjálæðingar, missum okkur/
dönsum. dönsum, við erum kolkreisí flokkur/
Ráðumst inní partý og dönsum allt vit úr fólki/
Allir sem við snertum verða að kolkreisí fólki/
Dansandi eins og pro's nema erum pinkuljótir/
En með dansi við heillum, einn tveir þrír fjórir/
finnum hvernig fæturnir fara af stað við hljóðið/
danstónlistin ber mann yfir fjöll og firnindi/
til Dancetown þar sem eru hin bestu kvikindi/
þau dansa með taktinum, þau eru ekta/
kunna allan fjandann allt frá vals til að steppa/
þau dansa og dansa, það er þeirra því þetta/
er Dancetown, nafnið segir allt sem vita þú þarft/
þar sem fólkið er ekta, þar sem ekkert er slappt/
þar sem allir af dansi þurfa sinn skammt/
sumir eru latir, en þeir dansa þó eins og aðrir/
foreldranir ávíta en þeir koma sér úr klandri/
þeir dansa á MSN, funky steps innan stjarna/
og fyrr en varði með MSN dansfélaga/
svo þar þeir dansa og dansa, þetta er vítahringur/
en ég er í klandri, ég er MSN single/




Þetta þarf kannski aðeins að slípa til…. Kannski mjög. Kannski jafnvel henda í ruslið.