Fyrsta lagi, reyndu að nota “Svara” í staðinn fyrir “nýr póstur”, þá haldast hlutirnir í samhengi :)
Þessi korkur er ekki til þess gerður að taka við hlutverki Ljóða korksins(sem er í ljóðaáhugamálinu), heldur er hugmyndin bakvið hann komin frá hiphop síðum erlendis þar sem menn hafa verið að pósta sínum eigin rímum á svona korka/messageboard og hafa oft myndast battle á þessum korkum.
Þetta er bara ein aðferð til að reyna að kveikja aðeins í íslensku senunni.
Hver þorir að byrja? :)