Djöfull er það rosalega ofsalega sjúklega ótrúlega ótúanlega sviflega súper súper mega míkró píkó nanó geðsjúkt geðveikt brjálæðislega ofboðslega funky fríkanlega fáránlega fallegt sætt krúttlegt sykursætt ágætlega fokking magnað frábært meira en sæmilegt og betra en besta fokking besta sem til er í alheiminum 1, 2, 3, 4, 5, vídd og hvaða andskotans aðrar víddir sem kannski eru til, þetta er himneskt satanískt rómantískt hjartanlegt. Gæska guðs og reiði satans hefur valið þennan tíma til að gefa mér og öðrum sem dýrka þessa hljómsveit þennan geðsjúka möguleika, möguleiki til að sjá goð í lifandi lífi. Færi frekar á þetta heldur en á fokking messu með jesús kristi. Missi ekki af þessu nema ég gufi upp og sál mín eyðist í tímaskekkju sem er svo étinn af stærsta svartholi sem til er. Ég trúi þessu ekki, er þetta enginn lygi, ertu a segja satt…………………………..Ég íhuga það að drepa þá sem mæta ekki á tónleika aldarinnar, nei frekar bestu og mestu tónleika sem nokkurna tímann hafa verið haldnir í alheiminum sama hvað hann þenst oft út………………………Takk Robbi ef ég mæti ekki endilega biddu þá um að kyssa leiðið mitt.