Ótrúlega svalur rappari. Það er eitthvað við hann sem er ekki hægt að koma orðum á. Hann hefur einhvern ótrúlegan karakter og einhvernveginn kemst upp með allt.
Hann er ekkert afgerandi textasmiður, en hefur gott delivery, veit ekki hvort gott er kannski rétta orðið - meira flott. Hann hefur gott production team og takturinn í Heat er fokking geðveikur. Many Men er líka geðveikt lag og lagið með þessum Karabísku trommum er geðveikt. Ég er að fíla 50 cent í tætlur, en viðurkenni að ég hafði fordóma gagnvart honum, eftir að hafa heyrt how to rob, sem mér finnst vera mjög slappt lag.