Ég vakna á morgnana þegar útvarpsvekjaraklukkan mín spilar “Can´t touch this” með Mc Hammer, klæði mig í Fubu gallann (skær appelsínugulur að sjálfsögðu), buxur niður á hné, önnur buxnaskálmin brotin upp þannig að sjáist í Thög og G-þang tattooin mín. Borða ekkert í morgunmat útaf því að til að vera alvöru Hiphop þá þarf maðu að vera “hungry for success and respect” sko. Ég fer beint út á götuhorn og sel krakk til foreldra minna og vina á meðan stjúppabbi minn lemur mömmu mína. Og síðan þegar ég er búinn að selja nokkur Gé liggur leiðin aftur heim í “projectið”. Ég borða stafasúpu í kvöldmatinn, er búinn að taka flesta stafina úr þannig að það eru bara M, C, D og J eftir. Eftir kvöldmatinn tek ég nokkur headspin, þeyti nokkrum skífum, og svo gríp ég brúsana og mála nokkrar lestir. Og í lok dagsins skelli ég mér á MSN og held áfram að kenna littlu vinum mínu hvernig á að vera alvöru hiphop eins og ég.
THUGPLAYAINDAPROJEX@HOEMAIL.WTC<br><br><a href="
http://www.go.to/ozek">Heimasíðan mín</a