Hér er ekkert samsæri í gangi. Dóri sendi mér skilaboð og spurði af hverju ég væri að fronta svona, og sem front þá vil ég fronta og svara honum hér:
Til að skapa smá spennu mar. Plús það að ég veit ég sökkaði feitt gegn þér og var arfaslakur í því battli, en afsakaðu sjálfstraustið, ég get freestælað og það væri aðeins skemmtilegra ef þú myndir líta á mig sem verðan andstæðing. Ég vil fá þig til að hlusta á mína gagnrýni í þinn garð, og þú ákveður síðan hvort þú tekur mig alvarlegan eður ei. Þvi miður get ég ekki tekið þína gagnrýni alvarlega vegna þess að ég er hvattur áfram af fólki sem segist elska tónlistina mína, og þær útskýringar sem ég gef lífinu. Ég kom með þetta komment mitt um að þú værir hóra í rappstrætinu þegar ég sá að næstum 60 manns ætla á frumsýningu 8 mile á huga, til samanburðar voru 47 sem skráðu sig á Loop Troop.Þú veist vel að mig dauðlangar að battla þig af því ég er algjörlega á móti því að gaur úr Mosfellsdalnum, komin af virðingarverðum ættum rappi á íslensku, okkar forna fjársjóði, eins og hann búi á Malibu og sé með milljóna dollara samninga hér og þar, hins vegar nærðu að koma því frá þér á drulluflottan hátt, annað en sumir rapparar sem einnig saurga okkar fornu tungu með svipuðum viðfangsefnum.Ég vona að ég geti haft einhver áhrif á þig.mcSB