kalt
Yo/
Mér finnst svo sorglegt að sjá unglinga í drykkju/ og sækja ekki kirkju/ vilja bara droppa ellur/ og drepa heilasellur/ svo gellur/ sem eru að nota fokking tóbak/ ættu að fara á prósak/ Acy Malacy er vondur karl/ gefur gellum 1000 kall/ til að kaupa bjór/ besefinn er stór/ er hann drýgur hór/ kærastan hans er yngri en Ingi þór/ sem er í barnakór/ Ég þekkti eitt sinn mann/ sem var alltaf uppdópaður/ og ég var alltaf að segja við hann/ hættu að nota spítt/ þótt þú færð það frítt/ og ekki láta þér detta í hug að fara í hass/ hættu bara að dópa/ þá sleppur þú við að sópa/ götur í garðabæ/ það
er sko svekking/ leiðindi og blekking/ var lífið hjá greyið dóphausnum/ sem tók kókaín úr ausum/hann lifði ekki lengi/ þótt að mamma hans hann flengdi/ þá gat hann ekki hætt/ þurfti að ganga berfættur/ á eldi/ og handrukkari hann geldi/ en hann þorði ekki að kæra/ hann var svo hræddur um að þeir mundu hann særa/ nógu mikið að hann deyji/ og hann sagði / við mig í síma/ ég á hvort sem er eftir að deyja einhverntíma/ af hverju ekki bara núna/ og hann saug þetta brúna/ dót, í alltof stórum skammti/ upp í nefið/ og ekki stoppar slefið/ er hann stígur inní dauðann/ stígur inní auðann/ heim/ og sér eftir því að hafa stefnt þeim/ sem hann börðu/ fast og oft/ og hentu honum upp á háaloft/ höfðu hann þar í heila viku/ hann var svo heimskur/ hann kunni ekki einu sinni á reglustiku/ því að hann sótti aldrei skóla/ hann hætti eiginlega bara strax/ hlakkaði aldrei til jóla/til að fá graflax/ hann vildi bara vera á fylleríi/ og eina áhugamálið hans var að sukka/ engin lukka/ var honum í hag/ og hann safnaði upp mörgum skuldum á dag/ hann gat engann veginn haldið sér í meðferð/ þótt að hann vissi að það væri fyrir hans eigin velferð/ og þegar hann byrjaði að strjúka/ þaðan/ þá vissi hann að allir hans draumar/ þeir fjúka/ í burtu/ og allir vinir hans/ voru komnir á rétta braut/ þetta var hans eigin lífsþraut/ sem hann verður bara að leysa/ alveg sjálfur/ enginn getur hjálpað/ svo þegar honum vantar pening/ þá brýst hann inní bíla/ hann byrjar strax að díla/ fer til útlanda/ og reynir að komast aftur hingað/ með mörg kíló af dópi/ á sér/ lendir í hópi/ tollgæslumanna/ nú var hann í veseni/ komst í fréttir/ var dæmdur í hæstarétti/ í 4 ár/ þarf að sitja þar inni/ að sinni/ er hann byrjaður aftur/ í fullri neyslu/ fór í veislu/ varð fullur/ tók inn pillur/ seldi krakk/ skítapakk/ sem sveik hann á meðann hann var inni/ hann var orðinn þreyttur á þessari lygi/ og hann hugsar/ hvernig á ég að enda þetta líf/ á hann að nota byssu eða hníf/ eða taka allt of stórann skammt/ hann velur/ skammtinn/ telur/ upp á tíu/ dáinn/ hvar er hann núna/ í tómum heimi/ grátandi/ hugsandi hvernig hann fór með þetta líf/ þessi reynsla/ hefur kennt mér að velja lífið/ og byrja ekki í dópi/ og vera í góðum hópi/ vina/ og styðja hina/ sem hafa lent í þessu helvíti/ kafað djúpt í þessum skíti/ og reyna bjarga þessu fólki/ með hólkinn/ sem vilja enda þetta allt/ þetta er kalt/