
Viðburðurinn er hluti af Unglist - listahátíð ungs fólks, sem haldin er af Hinu Húsinu árlega. Verðlaunin þetta árið verða mjög vegleg, Sennheiser heyrnatól frá PFAFF, Shure pick-upar og hljóðnemi frá Tónabúðinni og Vestax pick-upar og hljóðsíur frá Exton.
Meðal þátttakenda verða: DJ Paranoya, DJ Magic, DJ B Ruff, DJ Big Gee, DJ Nino, DJ Wiz, Mezzías MC, Bangsi, Bjartur Boli, Ruben og Siggi Bahama.
Aðgangur er opinn öllum aldri og aðgangseyrir er enginn, viðburðurinn byrjar kl.19:30.
Sætafjöldinn verður takmarkaður og því mælt með tímanlegri mætingu.
Dómarar verða DJ Fingaprint og DJ Saber (Noregi).
Karl KD mun sjá um kynningu á kvöldinu og DJ Deluxe spilar nokkur feit lög milli stríða.
Allar nánari upplýsingar um Unglist er að finna á www.hitthusid.is og um keppnina á www.hiphop.is.