Ég er búin að vera að lesa mér helling til um þetta og já þetta getur víst brotið á þeim nefið ef hann er ekki notaður rétt. En það er sagt að þessi hackamore, s.s.
English Hackamore sé betri heldur en
Mechanical Hackamore því að stangirnar séu styttri og því minna afl sem leggst á þær.
En já ég er alveg sammála þér með beislið á beisli.net, það er frekar dýrt og þeir panta það ekki aftur fyrr en um jólin en English Hackamore er til í Líflandi. Ég er búin að panta mér einn, hann kemur líklega á miðvikudaginn. Ætla að prufa og sjá hvernig hann er, hvort merin taki við honum :)