Vá ! það er svo geðveikt misjafnt. Við komum einni tveggja vetra inn á 10 sek eða eitthvað :) haha með smá heyi. En svo vorum við með meri í tamningu og vorum að sækja hana og hún þverneitaði að fara í kerruna. Tók okkur líklega klukkutíma og þetta endaði með því að tamningarmaðurinn og pabbi minn lyftu henni eiginlega í kerruna haha ;)
Ég held þetta hafi líka farið svolítið eftir kerrunni. Eins og til dæmis þessi tveggja vetra fór í nýju fínu stóru kerruna okkar, en tamningarmerin fór í gamla, þrönga og dimma kerru sem hún þurfti eiginlega að hoppa uppí.
Hestar geta hugsað svo voðalega misjafnt ;)