Það var svar við einum af korkunum hér fyrir neðan um hvernig maður sægi muninn, mjög gott svar þar, er bara í of hægri tölvu til að finna það fyrir þig.. En annars þá breyta margar merar um persónuleika þegar þær eru fylfullar, allavega þá er ein fylfull hér og hún var alltaf voðalega ljúf í umgengni, hægt að gera allt í kringum hana en núna reynir hún að slá mann og ógnar manni ef maður passar sig ekki :(
En ef það kemur folald þá er best að láta það eiga sig fyrst þar sem merarnar geta verið talsvert grimmar í að verja folöldin sín, hversu vel sem maður þekkir þær, en svo verður fólk að gera mun á að spekja og gera frekt, láta folaldið virða sig frá upphafi og þá er í lagi að hafa það spakt, reka það frá sér við og við og slá það ef það bítur og svoleiðis..
Bara vonandi að þetta hjálpi eitthvað ^^