Ég prófaði hest um daginn og reyndi hann á tölti. En sama hvað ég reyndi þá vildi hann ekki lyfta hausnum hann eiginlega dró hausinn á eftir sér. Svo var hann mjög taumstífur og frekar svona tregur. Ég var að spá hvernig hægt væri að fá hann til að reisa sig aðeins upp frá jörðinni. Af því að ég held að þetta sé ágætis hestur ef hann verður eitthvað þjálfaður?