nei, ég hef ekki dottið af baki en samt er ég búin að vera að skoða 19 hesta nýlega. þeir hafa ekki allir verið neitt góðir en hafa samt ekki reint að henda mér af baki.
ég hef dottið af baki :) það var sko bara fyndið…!!
ég var að ríða berbakt..var svona 5 ára..það var sko teymt undir mér þannig ég hélt bara í faxið..svo byrja ég eikkað að klappa..voða gaman..og hesturinn fælist.
Ég nottla ekkert til búin í það og rúlla sona afturábak kollhnís og lendi svo beint á rassinum:)
þetta er meira að segja til á myndbandi:) sem er….hm…týnt..!:þ

#16
Hehe, alltaf gaman af því að eiga þetta á myndbandi til að geta hlegið af! Ég væri sko til í að eiga það á myndbandi þegar ég hef dottið af baki eða verið hennt, það er öruglega frekar fyndið svona eftirá! :)
ég var nú rétt búin að drepa mig í sumar. Var í hestaferð og Mósi bara datt, og fór í kollhnís og ég náttla flaug af baki og lenti á öxlinni og skemmdi hana og líka bakið mitt :( en það var lán í óláni að þetta gerðist á eina grassvæðinu á stórum kafla, allt í kring var grjót…
nei en það hefur oft munað littlu eins og eitt sinn þá var hnakkurinn ekki festur alminnilega og ég snérist við í miðjum reiðtú og hékk bara á hvolvi þangatil einhver stoppaði hestinn.
já vá..það hefur líka skeð fyrir mig..! ég var á hesti sem ég hafði aldrei séð áður..fór með vini mínum á bæ til afa hans.. allavega..þessi hestur var frekar viljugur og ég fór ekkki niður fyrir hratt tölt allan tímann.. en svo var ég í strigaskóm(EKKI SNIÐUGT) og festi mig í öðru ístaðinu og hesturinn varð skíthræddur og fór að prjóna og sparka með afturlöppunum á meðan hnakkurinn færðist alltaf framar og framar og á hlið. Svo náði ég að beygja honum þannig hann gat ekki hreyft sig til að prjóna og náði að fara úr skónum og hoppa af baki :)
frekar sjokkerandi en svo restina að reiðtúrnum var geðveikt stuð…!;þ

#16
ohh, það er ömurlegt að festast í öðru ístaðinu… ég lenti einu sinni í því, og hesturinn trylltist! Náði samt að losna á endanum…

Ég ýtti ósjálfrátt á “nei” en ég hef samt dottið af baki… fattaði það ekki fyrr en eftir að ég svaraði :þ

Þetta er svolítið fyndin umræða :) en öll erum við öruglega frekar viss um að ‘'detta’' af baki kemur fyrir þegar manni er hent !! (þegar manni er hent þá dettur maður ekki satt;) see ya
ég hef ALDREI “dottið” af baki ;) Detta af baki er þegar þú gerir einhvað til að detta. Vera kastað af baki er þegar hesturin hendir þér af baki þá ert það ekki þú sem dettur ;)

"A dog is the only thing on earth that loves you more than he loves himself
“A dog is the only thing on earth that loves you more than he loves himself”
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..