Hvað eru heimspekilegar ástæður? Ertu að tala um siðferðislegar ástæður, stuðning fyrir þeirri skoðun að það sé siðferðislega rangt að éta kjöt? Að mínu mati illmögulegt. Hins vegar má færa fyrir því ýmis rök að gífurleg neysla vestrænna þjóða á kjöti, sérstaklega rauðu kjöti, veldur vistkerfi jarðar miklum skaða, er óheilbrigt og líklegast ekki sjálfbært til lengri tíma litið. Í þeim skilningi siðferðislegt álitamál, ef þér er drullusama um framtíðina og eiginn heilsu skiptir þetta engu máli.