Jæja, þetta er sko lÉTTIR!!!! Í dag er ég og tvær aðrar konur í bekknum búnar að flytja fyrirlestur um Marxismann og það gekk LJÓMANDI vel. Við gátum svarað öllum spurningum mótmælenda bekkjarins því við höfðum MIKIÐ fyrir þennan lærdóm.

Við vorum langt fram á nótt að reyna að þýða snúna texta frá þessari háfleygu ensku á listamáli. Þetta var nefnilega um Marxismann í listum og sumar setningarnar var vonlaust að þýða yfir á íslensku!!!!! Rosalega skal ég SOFNA SNEMMA Í KVÖLD…segi ég sem alltaf fer seint að sofa!