Vitið þið ekki neitt?

Tíminn er eins og vatnið
og vatnið er kalt og djúpt
líkt og vitund mín sjálfs

Og tíminn er eins og mynd
máluð af mér
og tímanum til hálfs

Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurfðar
inní vitund mín sjálfs