Heheh oj okei hljómar ekki vel. Mig dreymir voða sjaldan eitthvað slæmt, þegar ég var yngri dreymdi mig stundum einhvers konar martraðir eins og ég væri fastur sem gísl á sjóræningjaskipi en mér tókst alltaf að átta mig á að þetta væri draumur. Dreymi oftast drauma þar sem ég er að fljúga(geðveikir draumar) yfir Kópavogi(er þaðan) og einhverja fleiri sem ég man ekki eftir. Hef svona 2-3 drauma sem mig hefur dreymt aftur og aftur í mörg ár, jú og að ég geti hreyft hluti með höndunum eins og Jedi eða gaurarnir í Heroes heheh.
Eða heyrðu jú! Það er einn helvítis draumur sem mig dreymir svona af og til og ég gjörsamlega hata hann, mér finnst ekkert leiðinlegra en að dreyma þennan draum. Hann lýsir sér þannig að ég vakna, fer í skólann eða vinnu eða bara eitthvert út, nema hvað að ég gleymi bara algjörlega upp úr þurru að klæða mig í föt. Og ég átta mig ekki á því fyrr en ég er oftast kominn á áfangastað, nakinn. Shit þetta eru óþægilegustu draumar í heimi. Engar slæmar tilfinningar eins og hræðsla, ótti við eitthvað, reiði eða neitt þannig bara SHIT LOAD af óþægindum hahah.