Tja… eitthvað gerðist.
Mér var ekki sama, mér fannst þetta reyndar mjög áhugaverð könnun. Viðeigandi við áhugmálið fannst mér.
Þessi korkur fór af stað og þú eyddir tíma í að svara mér til dæmis… þetta hafði sín áhrif mjög greinilega.
Kannski var tilgangurinn ekki endilega að sjá svörinn, heldur kannski viðbrögðin, eins og augljóslega hafa komið upp hér á heimspeki.
Tilgangur er bara svo hræðilega afstætt hugtak þannig séð.
En ef einhverj myndi miða að mér byssu og skipa mér að skilgreina fyrir honum hvað tilgangur væri, myndi ég segja að tilgangur væri allt sem gerir þig hamingjusaman.
Annars, hef ég ekki hugsað nógu mikið um þetta.
Ashy…