Hvað áttu við með “að sigra hatur”?
Ef þú átt við að þetta sé eina leiðin til að eyða hatri, þá er það sennilega ekki með meiri hatri. Ísraelsmenn geta t.d. ekki losnað við hatur nágranna sinna með því að hata þá tilbaka og öfugt. Sömuleiðis er afar ósennilegt að maður geti losað sjálfan sig við eigin hatur (á hverju sem er) með því að hata bara örlítið meira.
Ef þú átt við eitthvað annað eins og að eina leiðin til að sigra andstæðing sem hatar mann sé með að hata andstæðinginn tilbaka, þá er það líka ósennilegt. Maður sigrar andstæðinga sína ef maður er öflugri og/eða klókari en þeir. Og maður getur gert það alveg án þess að hata þá.
En þú verður að útskýra aðeins betur hvað þú átt við með að “sigra hatur” því hatur er ekki strangt tekið eitthvað af því tagi sem maður getur keppt við eða sigrað í bókstaflegri merkingu.
___________________________________