Ja, allavega myndi ég segja að hún væri þá skjaldarlaus.
Hún væri varla nakin, þar sem það orð er ekki notað um dýr sem klæðast ekki fatnaði að jafnaði. Ég myndi ekki kalla skelina fatnað. Heimilislaus… ja, nú er ég ekki nógu fróð um lifnaðarhætti skjaldbaka til að geta svarað því.
Hugsanlega er hún bara hvorugt. Ástæðan fyrir því að þessi spurning ruglar fólk er að það er gert ráð fyrir að hún sé annaðhvort nakin eða heimilislaus. Hér er hægt að svara á ótal vegu og fer það allt eftir því hvernig þú skilgreinir heimilli eða nekt, auk þess þarf að vera á hreinu hvaða tilgangi skelin þjónar.
Annars er nokkuð víst að skjaldbakan myndi deyja þegar þú tekur af henni skjöldinn þar sem hún er samangróin skjaldbökunni (en það fer líklegast eftir því hversu fær skurðlæknir þú ert). En að sjálfsögðu þjónar þessi skjöldur fyrst og fremst því sem skyldir gera, þeir verja hana.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..