Finnst þér þá ekki dálítið furðulegt að spyrja svona? Vissulega myndir þú gera athugasemd við þessa spurningu: Hver trekkir upp alheiminn? Spurningin gerir meira en að spyrja spurningar, hún gefur líka í skyn að heimurinn sé úr eða eitthvað upptrekkjanlegt, sem við vitum ekkert um og þess vegna er spurningin frekar furðuleg.