Næsta heimspekikaffihús verður haldið á Café Cultura, Hverfisgötu 18, 101 Rvk, þann 4. október nk. kl. 20:30 og er umræðuefnið að þessu sinni: “Hvar er tilgang lífsins að finna?”.
Í lýsingu Róberts Jack, umsjónarmann heimspekikaffihússins, segir m.a.: “Á heimspekikaffihúsinu fer fram almenn samræða. Enginn þarf þó að tala frekar en hann vill. en annars gilda 4 viðmiðunarreglur: 1. að tjá sig með rökum og dæmum, 2. að hlusta vel á aðra, 3. að spyrja út í óljósta hluti, og 4. að gagnrýna kurteislega illa rökstudda skoðun.”
Það má fræðast meira um heimspekikaffihúsið hér.
Allir eru velkomnir.
___________________________________