Hæ Hvernig lán er hægt að fá á ósamþykkta íbúð?, ég var búinn að heyra að íbúðarlánasjóður láni ekki fyrir svoleiðis íbúðum. Þannig að ég er að spá hvað sé hagstæðast að gera..
Ég keypti mér ósamþyktta íbúð á sínum tíma og það er ekkert mál. Þú getur fengið lífeyrissjóðslán eða bankalán. Það er alltaf eftirspurn eftir ódýrum íbúðum fyrir fólk sem hefur ekki efni á öðru þannig að hún hækkar hlutfallslega alveg jafn mikið í verði og aðrar íbúðir og hugsanlega getur þú fundið út af hverju hún er ekki samþykkt og fengið hana samþykkta og þá hækkar hún ennþá meira þegar þú selur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..