Hvar á að kaupa sér rúm?
Mig langar að vekja athygli rúmakaupenda á því að mikilvægt sé að athuga við hvern verslað er áður en gengið er að kaupunum. Gott er að hringja í Neytendasamtökin og geta þau gefið upplýsingar um kvartanir og hvernig verslanirnar hafa brugðist við þeim. Mig langar einnig að benda á að verslunin Betra Bak hefur langa sögu af óleystum kvartanamálum og þekki ég til manneskju sem hefur lent illa í þeim. Ýmsar aðrar rúmaverslanir hafa hinsvegar leyst sín kvartanamál með sóma. Ég hvet ykkur því til að slá á þráðinn til Neytendasamtakanna áður en að þið leyfið óskammfeilnum skúrkum að svekkja ykkur. Takk fyrir.