Ofnarnir í íbúðinni minni eru tveir gamlir pottjárnsofnar og einn nýrri. Þeir eru allir með Danfoss stillingardóti, en einn þeirra virkar ekki. Við erum búin að prófa að tappa af honum (og hinum) en það dugði ekki til. Annar gamli ofninn, þessi sem virkar, er með svona vír hangandi út frá sér, eins og það dót eigi að skynja hitastigið, en hinn ofninn, þessi bilaði, er ekki með neitt svoleiðis. Getur verið að það sé vandamálið, eða er ofninn bilaður/ónýtur? Hvað gerir maður við svona ofna?
Takk fyrir hjálpina…<br><br>-oink oink flop flop-
-oink oink flop flop-