Erum að koma okkur fyrir..
jæja nú er ég flutt í íbúðina og við svona erum að koma okkur fyrir. ótrúlegt hvað ljósar stofugardínur og sætar eldhúsgardínur gera :) Já og fallegar bækur og myndir, mjög margar myndir af erfingjanum en það er bara sætt :) Við eigum í raun bara eftir að fá lánaða teppahreinsivél og hreinsa teppin, ákveða okkur hvernig uppröðunin í stofunni og svefnherberginu á að vera og klára að setja fötin inní skápa og raða puntinu. Svo vonumst við til að fá að mála í sumar, jafnvel í einhverjum fallegum litum. Annars er baðherbergið það minnsta í öllum heiminum, en við bara verðum að sætta okkur við það að geta ekki skipt um skoðun þar inni, ágætt kannski :) Annars erum við með sætann garð fyrir framann húsið og smá svona hellulagt þar sem hægt er að fá sér skjóltjald og fara í sólbað án þess að grannarnir séu glápandi á mann. Einnig býður gasgrillið upp á marga möguleika :) Jájá svei mér ef þetta verður ekki agætis grill sumar, já og bara ágætis sumar yfirleitt :)