Þessi kall er ljótur og þetta grænmeti og ávextir er bara asnalegt. Það kemur enginn hérna inn til að bæta heilsuna sína. 90% af áhugamálinu snýst og vaxtarrækt (diet, æfingar og þannig) eða að ná auknum árangri í öðrum íþróttum og svo er svona öðruhverju einhver stelpa sem heldur að hún sé veik og er síðan kannski með hita og vörtur en ákveður að hún þurfi að gera heilan þráð um það. Það var ein stelpa sem var alveg helvíti dugleg við þetta, minnir að hún hafi heitið ægishjálmur. Ég sver það, hún gerði 3-4 hverja viku.
Mér er skítsama þótt að áhugamálið heiti /heilsa, það snýst eiginlega allt hér á einn eða annan hátt um að fá flottari líkama. Settu saman mynd af Arnold, Ronnie og mynd af einhverjum gaur á undirfötunum að selja rakspíra og þá held ég að flestir verði happy. Eða já, kannski líka mynd af stelpu í bikini. Eða bara stelpur í bikini. Allavega ekki ávexti og grænmeti. Það er svo ógeðsleg klisja fyrir “heilsu”.