Þessi gaur er nú mjóasti gaur sem þeir hafa fundið. Ekki sérlega raunsönn mynd af maraþon hlaupara. Leitið bara af myndum af þeim sem hafa verið að vinna maraþon í heiminum. Þeir eru grannir en ekki svona. ;)
Þetta er auðvitað myndasería sem er notuð í einskonar áróðursskyni og ekki til að taka hátíðlega.
Ekki bara sá mjóasti heldur sá aumingjalegasti líka.
Þessi mynd endurspeglar 100% viðhorfið sem ríkir hérna á Heilsu. Skil ekki þetta diss á þolþjálfun hérna oft… man eftir ansi mörgum tilfellum sem að það hjálpaði mér að vera langhlaupari, man hinsvegar ekki eftir einu tilviki þegar það hjálpaði mér að taka 100+ í bekk.
Gaman að vita hvort það séu margar síður til á netinu sem eiga að vera tileinkaðar heilsu þar sem önnur hver mynd sem send er inn er af útúrsteruðm vaxtarræktartöllum.